Fara beint í efnið

15. mars 2022

Hjálpartæki send til barna og ungmenna á flótta

Sjúkratryggingar hafa sent fjölbreytt hjálpartæki áleiðis til Póllands en tækin eru ætluð börnum og ungmennum sem eru á flótta frá Úkraínu og þurfa á slíkum búnaði að halda vegna ýmis konar fötlunar.

Sjúkratryggingar lógó

Um 800 börn og ungmenni sem búa á heimili fyrir munaðarlaus börn í Úkraínu eru á leið þaðan til Póllands þar sem þau munu fá nauðsynlega endurhæfingarmeðferð á endurhæfingarstöð í borginni Poznan. Mikill skortur er á nauðsynlegum hjálpartækjum og ljóst að meðferð myndi ekki skila tilætluðum árangri nema úr því yrði bætt. Sjúkratryggingum barst beiðni um að aðstoða við að útvega slíkan búnað. Tveimur dögum síðar voru 9 vörubretti af margvíslegum hjálpartækjum, svo sem hjólastólum, göngugrindum, standgrindum og vinnustólum, send áleiðis til Póllands en auk Sjúkratrygginga gáfu Endurhæfing-Þekkingarsetur og Æfingarstöð SLF búnað. Um er að ræða búnað sem ekki nýtist lengur hérlendis en er í ágætu lagi.

Félag Úkraínumanna á Íslandi annast flutning búnaðarins til Lublin í Póllandi. Þar taka Rotary samtök borgarinnar á móti búnaðinum og tryggja að hann komist á áfangastað í Poznan.