4. júlí 2016
4. júlí 2016
Þessi frétt er meira en árs gömul
Helstu verkefni lögreglunnar á Suðurlandi vikuna 28. júní til 4. júlí
Mikil umferð var í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi um helgina. Lögreglan hélt uppi öflugu eftirliti á vegum vítt og breitt í umdæminu. Nokkur minni háttar árekstar urðu en án slysa.
Í gærdag réðust tveir hundar á tvö lömb í Fljótshlíð og særðu illa. Kennsl hafa verið borin á hundana sem voru ófundnir seint í gær.
Brotist var inn í bifreið á bílastæði við Seljavallalaug í Rangárþingi um miðnætti á fimmtudag. Rúða var brotin til að komast inn í bifreiðinni og bakpoka með fatnaði stolið.
Í síðustu viku voru 67 ökumenn kærðir fyrir hraðakstur á Suðurlandi, þrír fyrir að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna og tveir fyrir ölvunarakstur.