Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

16. nóvember 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Helstu verkefni lögreglunnar á Suðurlandi vikuna 10. til 16. nóvember 2015

Síðdegis á þriðjudag stöðvuðu lögreglumenn Pajero jeppa við Vík í Mýrdal. Athygli vakti hvað mikill varningur var í jeppabifreiðinni sem var á suðurleið. Við nánari skoðun kom í ljós að um var að ræða talsvert magn af áfengi og tóbaki. Strax vaknaði grunur um að þetta væri smyglvarningur. Tveir menn sem voru í jeppanum voru handteknir og færðir til yfirheyrslu. Í framhaldi var einn handtekinn á höfuðborgarsvæðinu sem talinn var að tengjast málinu. Við yfirheyrslur viðurkenndu tveir mannanna að hafa smyglað áfenginu og tóbakinu í land á Reyðarfirði. Lögreglan lagði hald á um 300 áfengisflöskur, um 2000 neftóbaksdósir og um 1500 sígarrettupakka. Staða málsins er sú að verið er ganga frá því til afgreiðslu til ákærusviðs lögreglustjórans á Suðurlandi.

Flatskjá var stolið úr sumarbústað við Suðurheiðarveg í Grímsnesi á tímabiliinu frá 16. október til 13. nóvember síðastliðinn. Eigendur bústaðarins höfðu ekki komið í húsið í tæpan mánuð. Málið er óupplýst.

Tvö fíkniefnamál komu upp í síðustu viku. Ökumaður sem var stöðvaður á Eyrarbakkavegi hafði í fórum sínum fjórar jónur og eina kúlu af hvítu dufti. Auk þess var hann grunaður um að vera undir áhrifum fíkniefna við aksturinn. Í Þorlákshöfn voru höfð afskipti af konu vegna gruns um að hún hefði í vörslum sínum fíkniefni. Við leit fundust hjá henni um 3 grömm af kannabis ásamt neyslutólum.

Mikið álag hefur verið á lögreglunni á Suðurlandi undanfarna daga vegna fjölda umferðaróhappa í kjölfar mikillrar hálku á vegum einkum í uppsveitum Árnes- og Rangárvallasýslu. Skráð voru 20 óhöpp og slys en engin þó alvarleg. Samt sem áður þarf í flestum tilvikum að kalla til lögreglu og sjúkralið og stundum um langan veg að fara.