5. desember 2017
5. desember 2017
Þessi frétt er meira en árs gömul
Helstu verkefni dagana 27. 11 til 3. 12. 2017
Tveir ökumenn eru grunaðir um að hafa ekið bifreiðum sínum undir áhrifum áfengis í liðinni viku. Eins og alltaf mun lögregla leggja aukna áherslu á eftirlit með ástandi ökumanna í umferðinni í desember en í gegn um árin hefur aðventan með tilheyrandi jólagleði leitt til þess að fleiri virðast laumast af stað á bílum sínum án þess að vera í ástandi til þess.
26 ökumenn voru kærðir fyrir að aka of hratt í vikunni. Að venju ljúka þessir einstaklingar málum sínum með greiðslu sektar, flestir á vettvangi brots, og bætist sú upphæð við heildartölu álagðra sekta við embættið en hún nemur nú rúmlega 140 milljónum það sem af er árs. Hlutfall erlendra ferðamanna í þessum sektum er þannig að 1419 einstaklingar eru með íslenska kennitölu en 1425 eru án íslenskrar kennitölu.
7 slys voru tilkynnt til lögreglu í liðinni viku. Í einu þeirra slasaðist tamningamaður á fæti þegar hestur sló hann illa. Viðkomandi var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar. Þrjú slys urðu með þeim hætti að gangandi vegfarandi féll í hálku en engin aðilanna er talinn alvarlega slasaður.
Kona féll í hlíðum Ingólfsfjalls þann 27. nóvember s.l. Hún var slösuð á baki og var kallað eftir aðstoð þyrlu LHG til að flytja hana úr brekkunni og á sjúkrahús í Reykjavík. Á meðan á aðgerðum stóð varð vart við drón á flugi í grend við slysstað, í fráflugshæð þyrlunnar. Þegar björgunaraðgerðum lauk var flygildið elt og haldlagt af flugmönnum LHG sem jafnframt munu hafa tilkynnt flugmálayfirvöldum um alvarlegt flugatvik enda ljóst að flug dróna í kring um þyrluna skapar verulega hættu á slysi ef flygildi lendir í spöðum þyrlunnar.
Karlmaður slasaðist 27. nóvember s.l. þegar hann féll af vélsleða í skipulagðri ferð á Mýrdalsjökli. Hann var talinn hafa farið úr axlarlið og var fluttur af jöklinum af ferðaþjónustufyrirtækinu og áfram undir læknishendur með sjúkrabifreið.
Í haust hafa verið haldnar svokallaðar almannavarnarvikur í sveitarfélögum umdæmisins. Í þessum vikum hafa fulltrúar lögreglu unnið með sveitarfélögunum að áhættugreiningu í sveitarfélaginu, gerð áætlunar um langtímaviðbrögð við náttúruhamförum ásamt því að íbúafundir hafa verið haldnir í hverju umdmæmi meðaðkomu sérfræðinga frá Veðurstofu sem frætt hafa íbúa um þá náttúruvá sem helst er þekkt í hverju sveitarfélagi. Stefnt er að því að ljúka þessari vinnu í janúar 2018.