Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

28. nóvember 2016

Þessi frétt er meira en árs gömul

Helstu verkefni

Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu og tiltölulega fá mál sem komu upp. Helgin gekk ágætlega fyrir sig og rólegt í kringum skemmtistaði bæjarnis.

Alls liggja fyrir fimm kærur vegna brota á umferðarlögum eftir vikuna en um er að ræða biðskyldubrot, ólöglega lagningu ökutækja og vanrækslu á að nota öryggisbelti í akstir.

Eitt umferðaróhapp var tilkynnt lögreglu í liðinni viku en þarna hafði bifreið runnið og lenti á grindverki. Engin slys á fólki og minnháttar tjón á bifreiðinni og grindverkinu.

Lögreglan vill minna ökumenn á að nota ökuljósin en töluvert ber á því að ökumenn aki um með svokölluð dagljós kveikt en ekki aðalljós. Þegar dagljósin eru kveikt er yfirliett ekki kveikt á afturljósunum og því nauðsynlegt að kveikja aðalljósin til að virkja afturljósin. Þetta á auðvitað alltaf við en þó sérstaklega núna í skammdeginu.