29. mars 2016
29. mars 2016
Þessi frétt er meira en árs gömul
Helstu verkefni
Páskahelgin fór fram með ágætum og engin alvarleg mál sem upp komu. Skemmanahaldið gekk með ágætum og að mestu áfallalaust.
Í liðinni viku var enn á ný tilkynnt um nytjastuld á léttu bifhjóli og hafði umrætt hjól verið tekið við hús í Foldahrauni. Var þarna um tvo drengi að ræða og höfðu þeir verið að aka hjólinu þarna um nágrennið.
Undir kvöld á skírdag var tilkynnt um sömu drengi og tekið höfðu léttbifhjólið, þar sem þeir höfðu farið inn í bílskúr við hús í Búhamrinum. Voru þeir búnir að taka hina ýmsu hluti ófrjálsri hendi þarna inni og töldu sig vera í rétti þar sem húsið var búið að vera mannlaust í einhvern tíma.
Tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt lögreglu um páskana og má rekja bæði óhöppin til hálku. Í fyrra tilvikinu var um að ræða óhapp á Hamarsvegi þar sem ökumaðurinn missti stjórn á bifreiðinni með þeim afleiðingum að bifreiðin lenti á ljósastaur. Ekki urðu alvarleg slys á fólki í óhappinu en bifreiðin var óökufær á eftir.
Síðdegis á annan í páskum var lögreglu tilkynnt um útafakstur á Dalavegi en þarna hafði ökumaðurinn misst stjórn á bifreið sinni þannig að bifreiðin lenti utanvega og valt eina veltu. Ökumaðurinn, sem var einn í bifreiðinn, kvartaði yfir eymslum eftir óhappið. Bifreiðin var óökufær eftir óhappið.
Alls liggja fyrir fimm kærur vegna brota á umferðarlögum eftir liðna viku. Í fjórum tilvikum var um að ræða ólöglega lagningu ökutækja og í einu tilviki akstur án ökuréttinda.