Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

17. ágúst 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Helstu verkefni

Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu og frekar rólegt yfir öldurhúsum bæjarins um liðna helgi.

Alls liggja fyrir 6 kærur vegna brota á umferðarlögum og má m.a. nefna ólöglega lagningu ökutækis, vanræksla notkun öryggisbeltis í akstri og notkun farsíma í akstri án handfrjáls búnaðar.

Þá var, í vikunni, tilkynnt um að ekið hafi verið utan í bifreið sem stóð á efra bifreiðastæðinu við Godthaab í Nöf og sá sem tjóninu olli hafi farið í burtu án þess að tilkynna um óhappið. Talið er að atvikið hafi átt sér stað á milli kl. 15:00 og 18:00 þann 15. ágúst sl. Þeir sem einhverjar upplýsingar hafa um hver þarna var að verki er vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu.

Eitt umferðaróhapp var tilkynnt lögreglu í liðinni viku en þarna var um minniháttar óhapp að ræða og engin slys á fólki.