5. mars 2018
5. mars 2018
Þessi frétt er meira en árs gömul
Helstu verkefni 26. febrúar til 5. mars 2018.
Tveir ökumenn voru stöðvaðir um liðna helgi grunaðir um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Þá voru tveir ökumenn sektaðir vegna umferðarlagabrota, annar fyrir ólöglega lagningu ökutækis og hinn fyrir að hafa ekki öryggisbelti spennt í akstri.
Eitt umferðaróhapp var tilkynnt lögreglu í liðinni viku en þarna hafði ökumaður ekið afturábak og lent á kyrrstæðri bifreið. Engin slys urðu á fólki en smávægilegt tjón varð á ökutækjum.
Síðdegis sl. sunnudag var lögreglu tilkynnt um sinueld vestan við Lukku, en slökkviliði Vestmannaeyja tókst að slökkva eldinn áður en tjón hlaust af. Ekki er vitað um eldsupptöku.