Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

7. júlí 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Helstu verkefni

Lögreglan hafði í mörg horn að líta í liðinni viku enda töluverður fjöldi fólks í bænum og þá sérstaklega um helgina. Mikil fjöldi fólks sótti skemmtun á Skipasandi og fór skemmtana haldið þokkalega fram að mestu. Eitthvað var um pústra og liggja þegar fyrir nokkrar kærur vegna líkamsárása.

Eins og þegar hefur komið fram í fjölmiðlum er til rannsóknar meint kynferðisbrot sem tilkynnt var til lögreglu að morgni sunnudagsins 5. júlí sl. Karlmaður á sextugsaldri var handtekinn í þágu rannsóknar málsins en hefur verið látinn laus. Málið er í rannsókn.

Fimm líkamsárásir voru tilkynntar lögreglu eftir skemmtanahald helgarinnar og hafa fjórar þeirra þegar verð staðfestar. Ekki er um alvarlega áverka að ræða í þessum árásum en í einni þeirra kvarnaðist upp úr tönn.

Tvö fíkniefnamál komu upp í liðinni viku en í öðru málinu var drengur á þrettánda ári tekin með tóbaksblandað maríhúana. Í framhaldi af því var maður um tvítugt handtekinn og viðurkenndi hann að hafa seld drengnum efnið.

Eitt umferðaróhapp var tilkynnt lögreglu í liðinni viku en um var að ræða árekstur þriggja bifreiða á Heiðarvegi. Ökumaður einnar bifreiðarinnar kvartaði yfir eymslum eftir óhappið. Lítið tjón varð hins vegar á bifreiðunum.

Fimm kærur liggja fyrir vegna brota á umferðarlögum, en um er að ræða m.a. brot á stöðvunarskyldu, vanræksla á að nota öryggisbelti í akstri og notkun farsíma í akstri án handfrjáls búnaðar.