Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

28. febrúar 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Helgarvaktin

Fjórtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og/eða fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Tilkynnt var um fjórtán líkamsárásir, þar af eina alvarlega, og farið var í sex útköll vegna heimilisofbeldis. Á annan tug þjófnaðarmála var tilkynntur til lögreglu, m.a. búðaþjófnaðir, og sömuleiðis barst nokkuð af tilkynningum um eignaspjöll, sem var aðallega veggjakrot í vesturbæ Reykjavíkur. Um helgina voru enn fremur höfð afskipti af þrjátíu og fimm ökutækjum sem var lagt ólöglega á miðborgarsvæðinu. Þá voru sex umferðarslys tilkynnt til lögreglu á sama tímabili.