20. október 2026
20. október 2026
Heimsóknum til sýslumanns vegna umsókna um ökuskírteini fækkar
Nú er hægt að nota mynd úr vegabréfi notanda í öllum stafrænum umsóknum vegna ökuskírteina á Ísland.is. Umsækjendur þurfa því ekki lengur að mæta til sýslumanns til að skila inn mynd.

Áður þurftu umsækjendur um námsheimild að mæta með passamynd á ljósmyndapappír og gefa undirritun. Nú geta þeir valið mynd úr vegabréfi sínu í umsókninni. Um 343 þúsund vegabréf eru í gildi, og geta umsækjendur sem eiga mynd í vegabréfi nýtt hana með þessum hætti.
Miðað við umsóknartölur ársins 2025 geta um 40 þúsund umsóknir á ári nýtt þessa lausn. Þar af eru um 20 þúsund umsóknir um endurnýjun ökuskírteina, um 16 þúsund umsóknir vegna nýrra ökunema og fullnaðarskírteina þeirra og um 4 þúsund umsóknir um samrit, eða endurprentun, ökuskírteinis.
Verkefnið er unnið í samstarfi sýslumanna, lögreglunnar, Samgöngustofu, Stafræns Íslands og Þjóðskrár.