Fara beint í efnið

17. maí 2023

Heimsókn frá WASLI

Heimsókn frá alheimssamtökum táknmálstúlka.

Wasli hópur

Í síðustu viku fékk starfsfólk SHH heimsókn frá WASLI, alheimssamtökum táknmálstúlka. Arunas Brazinkas, ráðgjafi döff túlka og meðlimur í stjórn WASLI, kynnti starfsemi WASLI með alþjóðatáknun og Júlía G. Hreinsdóttir túlkaði yfir á íslenskt táknmál. Við þökkum Arunas fyrir heimsóknina og fræðslu um þessi stóru samtök sem styðja túlka um allan heim í átt að faglegri vinnubrögðum og betri menntun.

Arunas hélt fyrirlestur á alþjóðatáknun og Júlía túlkaði yfir á íslenskt táknmál.