2. nóvember 2026
2. nóvember 2026
Heimsókn á Skóga og Selfoss
Heimsóknir þjóðskjalavarðar og aðstoðarþjóðskjalavarðar á héraðsskjalasöfn héldu áfram í október. Að þessu sinni voru Héraðsskjalasafn Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga á Skógum og Héraðsskjalasafn Árnesinga á Selfossi heimsótt.

Héraðsskjalasafn Árnesinga. Frá vinstri: Njörður Sigurðsson, Hrefna Róbertsdóttir, Þorsteinn Tryggvi Másson, F. Elli Hafliðason og Guðmunda Ólafsdóttir
Að morgni miðvikudagsins 28. október síðastliðins héldu Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður og Njörður Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörður að Skógum. Þar tóku Árný Lára Karvelsdóttir héraðsskjalavörður og Andri Guðmundsson, forstöðumaður Skógasafns, á móti þeim. Eftir hádegi lá leiðin á Héraðsskjalasafn Árnesinga á Selfossi, þar sem Þorsteinn Tryggvi Másson héraðsskjalavörður, Guðmunda Ólafsdóttir yfirskjalavörður og F. Elli Hafliðason skjalavörður tóku á móti þeim.
Í heimsóknunum var aðstaða safnanna skoðuð og rætt um helstu mál opinberra skjalasafna. Meðal umræðuefna voru rafræn skjalavarsla, miðlun skjala og ljósmynda úr safnkosti, eftirlit með skjalavörslu og skjalastjórn afhendingarskyldra aðila, skráning pappírsskjalasafna og aðgangur almennings að safnkosti.
Starfssvæði Héraðsskjalasafns Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga nær yfir Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu. Þar eru fimm sveitarfélög: Ásahreppur, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur. Starfssvæði Héraðsskjalasafns Árnesinga nær yfir alla Árnessýslu. Þar eru átta sveitarfélög: Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur, Hveragerðisbær, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Sveitarfélagið Árborg og Sveitarfélagið Ölfus.

Héraðsskjalasafn Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga á Skógum. Frá vinstri: Njörður Sigurðsson, Andri Guðmundsson, Árný Lára Karvelsdóttir og Hrefna Róbertsdóttir