3. desember 2025
3. desember 2025
Haustúthlutun Tækniþróunarsjóðs 2025
Stjórn Tækniþróunarsjóðs hefur samþykkt að bjóða fulltrúum 72 verkefna sem sóttu um í sjóðinn á haustmisseri að ganga til samninga um nýja styrki.

Í boði voru styrktarflokkarnir Sproti, Vöxtur og Markaður. Alls bárust 376 umsóknir og er árangurshlutfall styrktra verkefna sem hlutfall af innsendum umsóknum 14%. Haft verður samband við verkefnisstjóra þessara verkefna og þeir boðaðir til samningafundar.
Í þessari úthlutun er styrkveiting til nýrra verkefna 1.333 milljónir króna í heild, þar af 730 milljónir króna á fyrra ári verkefna.
Næsti umsóknarfrestur verður 15. febrúar, 2026.
Á seinni árshelmingi 2025 bárust 98 umsóknir í styrktarflokk Fræ/Þróunarfræ og var árangurshlutfall styrktra verkefna sem hlutfall af innsendum umsóknum 21%. Alltaf er opið fyrir umsóknir í Fræ/Þróunarfræ og tilkynnt verður síðar hvenær umsóknir verða næst teknar saman og sendar í mat hjá fagráði.
Samantektarskýrsla Tækniþróunarsjóðs yfir haustúthlutun árið 2025 verður aðgengileg undir útgáfa og kynning.
Hlutverk Tækniþróunarsjóðs er að styðja við rannsóknir og þróunarstarf sem miða að nýsköpun í íslensku atvinnulífi en hann er opinn fyrir nýsköpunarverkefnum úr öllum atvinnugreinum. Sjóðurinn er samkeppnissjóður sem býður upp á fjölmarga styrktarflokka fyrir verkefni á mismunandi stigi þróunar. Sjóðurinn heyrir undir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
Eftirfarandi verkefnum er boðið til samninga við sjóðinn að þessu sinni*:
Sjóður | Umsækjandi | Titill |
Sproti | Alga ehf. | SeaBid - framtíðin í sölu sjávarafurða |
Sproti | Arcova ehf. | Heilsueflandi Heilaörvun |
Sproti | BLUEYES EHF | Blóðþurrð í augum |
Sproti | Bancony ehf. | Gervigreindarvörur fyrir stafræna bankaþjónustu |
Sproti | CROW OUTDOORS EHF. | CROW OUTDOORS - Einfaldari, hagkvæmari og grænni útivist með flatpökkun |
Sproti | EcoAnodes | Umhverfisvæn rafskaut fyrir kísil- og áliðnað |
Sproti | GenePrint | GenePrint: Þróun snjallsímaforrits fyrir greiningu sjaldgæfra erfðasjúkdóma |
Sproti | K01 ehf. | Ferlahermir K01 |
Sproti | Mass Games | Space Hauler |
Sproti | Norðurdalur ehf. | GAGNVARMI: Vatnskæling gagnavera með upphitun eldisvökva |
Sproti | Ogma | Leo: Gervigreindardrifið Námsforrit Fyrir Börn Með Málþroskaröskun |
Sproti | OptiDesign | OptiDesign |
Sproti | Pretty Potato Games | Wake World |
Sproti | Revol ehf. | Kennitalan - Einfaldar kaup, sölu og stofnun fyrirtækja |
Sproti | Robotix ehf. | Sjálfvirk viðgerðalína fyrir skautgaffla |
Sproti | SEA THRU ehf. | Sea Thru - Rekjanleiki á virðiskeðju íslenskra sjávarafurð |
Sproti | Signal heibrigðislausnir ehf. | Frumsmíð stafræns lyfjabakka |
Sproti | Sköpunargleði ehf. | Innovation Train – Greiningar- og nýsköpunarhugbúnaður |
Sproti | Streymi ehf. | Streymi—Hagkvæmari og hraðvirkari straumflæðigreiningar með gervigreind |
Sproti | Sæcare ehf. | Sæcare |
Sproti | Tech-Center ehf. | Þróun nýrrar ræktunartækni fyrir örþörunga: “Bio-Qb” |
Sproti | Tekna | Stafræn hleðslustýring |
Sproti | Terramar | Hagkvæm afloftun fyrir landeldi |
Sproti | The Orchid slf. | Farandleikarinn |
Sproti | VarmaMAX | VarmaMAX |
Sproti | Vit - Heilbrigðismáltækni ehf. | Vit – Heilbrigðismáltækni |
Vöxtur | 1984 ehf. | 1984 Skýjaþjónusta |
Vöxtur | 3Z ehf. | Kalsíumgangaloki sem meðferð við ADHD |
Vöxtur | Alda Solutions ehf. | Alda Inclusive AI: Þróun inngildandi gervigreindar |
Vöxtur | ArcanaBio ehf. | ArcanaLight: Ný tækni til að greina lífmerki í aðgengilegri lífsýnum með hjálp UV-litrófsgreiningar og gervigreindar |
Vöxtur | DTE ehf. | Efnagreiningarbúnaður fyrir fljótandi ál í ofnum |
Vöxtur | Genki Instruments ehf. | LAKI, nýstárlegur hljóðgervill og þróunarumhverfi |
Vöxtur | Hananja ehf | Neyðarlyf við malaríu í börnum |
Vöxtur | Hefring ehf. | IMAS EcoSpeed orkustjórnunarkerfið: skilvirkari eldsneytisnotkun fyrir strandhafsflota |
Vöxtur | Marbot ehf. | Sjálfflot fyrir sökkvanlegar skelræktarlínur |
Vöxtur | Mekkino ehf. | Snjall hnéþjálfi |
Vöxtur | Njörður Holding ehf. | Skölun á framleiðsluferli fyrir magnesíum útfellingu frá sjávarvatni |
Vöxtur | Resea Energy ehf. | Íslenskt Sjávargull |
Vöxtur | Sjávarlíftæknisetrið BioPol ehf. | Fjólublá |
Vöxtur | Videntifier Technologies ehf. | Öflugur vektor-gagnagrunnur fyrir gervigreind |
Vöxtur | Víkonnekt ehf. | Treyst.ai |
Markaðsþróun | Careflux ehf. | Merkúr: Markaðsþróun í Danmörku |
Markaðsþróun | Everen ehf. | Erlend markaðssetning Everen |
Markaðsþróun | Flow ehf. | Flow - Hugleiðsla nútímans í Norður Ameriku |
Markaðsþróun | Fléttan Earth Observation ehf. | Fléttan kannar Kanada |
Markaðsþróun | Keeps ehf. | Keeps CMS - Markaðsþróun á Norðurlöndunum |
Markaðsþróun | Showdeck ehf. | Showdeck - markaðsinnviðir |
Markaðssókn | Evolytes ehf. | Markaðssókn Evolytes í Brasilíu og Chile |
Markaðssókn | HEIMA Software ehf. | Markaðssókn Heima í Hollandi |
Markaðssókn | LOVE Synthesizers ehf. | First LOVE Composer Synthesizer markaðssókn |
Markaðssókn | Sowilo ehf. | Markaðssetning Catecut í Singapore |
Fræ
Verkefnisstjóri | Heiti verkefnis |
Ágúst Bjarki Ágústsson | Rannsókn á notkun gervigreindar til þess að leysa akstursleiðaverkefni og bæta umferðarflæði í borgum. |
Ástráður Sigurðsson | Þróun á XOS fæðubótarefni úr íslenskri söl |
Friðþjófur Þorsteinsson | Encore |
Gissur Máni Ísleifsson | Nákvæm Frammistöðu Greind |
Helgi Már Þórðarson | Fasteignafélagið – Stafræn meðfjárfestingarlausn fyrir húsnæðismarkaðinn |
Hermann Ómarsson | Sjálfbært tannkrem úr íslenskri náttúru og hliðarstraumum |
Hilmar Þór Pétursson | Rauntíma Örplast-Greinir |
Hlini Melsteð Jóngeirsson | Fullvalda skýjaþjónusta fyrir íslenska markaðinn |
Jessica Marie Hooper | EBONRADE, tölvuleikir sem hugbúnaðar pallur |
Jónas Ingi Ragnarsson | Modulina - Einingar fyrir landbúnaðardróna (Hagkvæmniathugun) |
Júlia Cristie Kessler | Anahí heilunarkrem |
Kristján Óttar Rögnvaldsson | Hagkvæmni flugáætlana |
Mirabela-Cristina Harja | Emotico Planet App |
Samuel Thornton Rees | Róbotík Reykjavíkur |
Sigurður Halldór Árnason | 66° North Hemp: Hampyrki, -prótein, -olía og -mjólkurvörur við 66° norður |
Sigurður Teitur Tannason | SNAM.IS |
Tatiana Shirokova | Dynamo: Dýnamísk tilboðsvél fyrir flugfélög |
Thelma Dögg Grétarsdóttir | Calarmis |
Vilhelm Yngvi Kristinsson | Gangvirkur umferðarhermir í þrívídd |
Yuang Yang | Balanced Basket – snjallari matvöruáætlanagerð fyrir dýrtíðarlönd |
Örvar Hafsteinn Kárason | Hugbúnaður sem upprunavottar forritunarverkefnislausnir nemanda |
*Listinn er birtur með fyrirvara um villur