13. apríl 2016
13. apríl 2016
Þessi frétt er meira en árs gömul
Harmleikur á Akranesi
Sá hörmulegi atburður átti sér stað á Akranesi sl. nótt að maður á
sjötugsaldri myrti konuna sína með skotvopni og tók síðan eigið líf.
Konan var á sextugsaldri. Atburðirnir gerðust í fjölbýlishúsi á Akranesi.
Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á Vesturlandi.
Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.