Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

8. janúar 2016

Þessi frétt er meira en árs gömul

Harður árekstur í Keflavík

Einn var fluttur undir læknis hendur eftir að harður árekstur varð á gatnamótum Hringbrautar og Faxabrautar í Keflavík í gærkvöld. Áreksturinn varð með þeim hætti að bifreið var ekið viðstöðulaust í veg fyrir aðra á framangreindum gatnamótum. Ökumaður fyrrnefndu bifreiðarinnar fann mikið til í fótum og var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Bifreiðirnar voru báðar óökufærar og voru fjarlægðar með dráttarbifreið.

Fleiri umferðaróhöpp urðu í vikunni í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum en þau voru minni háttar og engin slys urðu á fólki.