Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

26. október 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Harður árekstur á Skálholtsvegi

Um klukkan 15 í dag var mjög harður árekstur á Skálholtsvegi skammt austan við Biskupstungnabraut. Ökumaður fólksbifreiðar á leið vestur Skálholtsveg er talinn hafa misst bifreið sína út í vegkantin og brugðist við með því að kippa í stýrið inn á veginn. Við það mun hann hafa misst stjórn á bifreiðinni sem fór yfir á rangan vegarhelming og framan á bifreið sem í því kom á móti. Ökumaður var einn í þeirri bifreið en í hinni var farþegi sem skarst talsvert. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á heilsusgæslustöðina á Selfossi þar sem gert var að sárum hans. Báðar bifreiðarnar eru óökufærar eftir áreksturinn. Slökkviliðsmenn voru kallaðir á staðinn til að hreinsa upp olíur og önnur efni sem láku úr ökutækjunum á veginn.