Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

2. febrúar 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Harður árekstur á Grindavíkurvegi

Ökumaður og farþegi voru fluttir á Landspítalann í Fossvogi eftir að harður árekstur varð á Grindavíkurvegi í gærkvöld. Atvikið varð með þeim hætti að umræddur ökumaður ók bifreið sinni af afleggjaranum að Bláa lóninu í veg fyrir aðra bifreið sem ekið var Grindavíkurveginn til suðurs. Ökumaður hinnar síðarnefndu fór á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til frekari skoðunar.

Bifreiðirnar skemmdust mikið og voru þær fjarlægðar af vettvangi með kranabifreið. Mennirnir tveir sem fluttir voru á slysadeild slösuðust ekki alvarlega.