28. nóvember 2020
28. nóvember 2020
Þessi frétt er meira en árs gömul
Handteknir fyrir ólæti
Þrír ungir menn voru handteknir fyrir ólæti i Kópavogi í nótt, en þeir létu mjög ófriðlega eftir að lögreglan stöðvaði för ökumanns í bænum sem var grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Þremenningarnir, sem voru farþegar í fyrrnefndri bifreið, reyndu að tálma störf lögreglunnar á vettvangi og höfðu uppi grófar hótanir í garð lögreglumanna. Eftir að ökumaðurinn var handtekinn fóru þremenningarnir síðan að lögreglustöðinni í Kópavogi og héldu þar uppteknum hætti, en svo fór að þeir voru allir handteknir. Háttsemi mannanna fólst m.a. í því að hrækja á lögreglumenn, berja og sparka i lögreglubíla og reyna ítrekað að frelsa handtekinn mann.
Á meðal málsgagna eru upptökur úr búkmyndavélum lögreglumanna á vettvangi.