Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

11. nóvember 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Hæstiréttur snýr farbanni í gæsluvarðhald

Lithái sem úrskurðaður var í farbann vegna meints innflutnings á kókaíni var í gær gert að sæta gæsluvarðhaldi til föstudagsins 2. desember næstkomandi. Þetta var niðurstaða Hæstaréttar eftir að Lögreglustjórinn á Selfossi kærði til Hæstaréttar úrskurð héraðsdóms um að maðurinn skyldi sæta farbanni í stað gæsluvarðhalds eins og lögreglustjóri gerði kröfu um. Lögreglustjórinn taldi hættu á að maðurinn myndi reyna að komast úr landi áður en mál hans yrði til lykta leitt og því væri farbann ekki nægilega örugg leið til að koma í veg fyrir það. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur handtekið manninn og komið í hendur Fangelsismálastofnunar.