Fara beint í efnið

27. desember 2023

Hækkun uppbóta og styrkja hreyfihamlaðra vegna bifreiðakaupa

Frá og með 1. janúar nk. hækka uppbætur og styrkir til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiðakaupa.

Tryggingastofnun-og:Image

Uppbót vegna bifreiðakaupa hækkar úr 360.000 kr. í 500.000 kr. en ef um fyrstu kaup er að ræða eða ef viðkomandi hefur ekki átt bifreið síðustu 10 ár fyrir umsókn hækkar uppbótin úr 720.000 kr. í 1.000.000 kr. Þessar upphæðir hafa ekki hækkað síðan í nóvember 2015.

Styrkur til að kaupa bifreið hækkar úr 1.440.000 kr. í 2.000.000 kr. Hámarksstyrkur fyrir sérútbúna bíla hækkar úr 6.000.000 kr. í 7.400.000 kr., en þessi styrkur hækkaði síðast í júní 2020.

Sjá nánar í reglugerð nr. 1419/2023 um breytingu á reglugerð nr. 905/2021, um uppbætur og styrki til hreyfihamlaðra einstaklinga vegna bifreiða.