10. september 2025
10. september 2025
Gulur september
Í dag, 10. september, er alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga, Gulur september, sem er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Markmiðið með gulum september er að auka meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna

Geðlestin verður með ýmsa viðburði víða um land í september. Þá ferðast landssamtökin Geðhjálp um landið og býður upp á samtal um geðrækt og geðheilsu í bland við tónlist og gleði.
Á hádegisfundinum kynnir Geðhjálp ýmsa geðheilsuvísa (mælikvarða), fjallar um mikilvægi geðræktar, hvernig draga megi úr fordómum og mögulegar leiðir til þess að efla forvarnir. Markmiðið er einnig að eiga samtal við heimafólk og hvað helst brennur á því í tengslum við geðrækt og geðheilbrigði.
Kvölddagskrá er aðeins öðruvísi sett upp. Hún hefst á stuttri kynningu á Geðhjálp og starfi samtakanna. Eftir það verður farið yfir mikilvægi reglulegrar geðræktar út lífið og ýmsar leiðir ræddar. Þá mun einstaklingur segja frá sinni reynslu af geðrænum áskorunu,g hvernig bata var náð og hvaða verkfæri hafa reynst best. Eftir reynslusöguna verða umræður og í lokin stíga þeir félagar Emmsjé Gauti og Þormóður á svið og leika nokkur lög til að árétta að geðrækt er líka gleði og skemmtun.
Aðgangur er ókeypis og eru öll velkomin.
Viðkomustaðir Geðlestarinnar haustið 2025
Þriðjudagur 16. september
Kvöld kl. 20:00á Hvolsvelli í félagsheimilinu Hvoli
Miðvikudagur 17. september
Fyrir og eftir hádegi fundir á Reykjanesi og Suðurlandi
Mánudagurinn 22. september
Kvöld kl. 20:00 á Ísafirði í safnaðarheimili Ísafjarðarkirkju
Þriðjudagurinn 23. september
Hádegi: Strandabyggð og Reykhólar – kvöld kl. 20:00 á Sauðárkróki á Gránu
Miðvikudagurinn 24. september
Hádegi: Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð – kvöld kl. 20:00 á Akureyri í Hofi
Fimmtudagurinn 25.septemberr
Hádegi: Fjarðabyggðarð og Múlaþing – kvöld kl. 20:00 í Neskaupstað í Nesskóla
Sjá nánar á gulurseptember.is