Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

18. desember 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Grunsamlegar mannaferðir og innbrot á Akureyri.

Lögreglan á Akureyri vill vekja athygli á að nú í dag hefur verið tilkynnt um tvö innbrot í heimahús í bænum og eiga þau það sameiginlegt að hafa átt sér stað eftir að heimilisfólk fór til vinnu í morgun.

Þá hafa lögreglu borist þrjár tilkynningar um aðila sem hafa knúið dyra í dag og þegar í ljós hefur komið að fólk er heima í þessum húsum hafa þessir aðilar spurt um einhvern aðila sem ekki býr í viðkomandi húsnæði og farið á brott í kjölfarið. Ef fólk verður vart við einhverjar óeðlilega mannaferðir eða fær óeðlilegar heimsóknir þá endilaga að hafa samband við lögreglu.