5. júní 2015
5. júní 2015
Þessi frétt er meira en árs gömul
Grunnám í tæknirannsóknum lögreglu
Fyrr á þessu ári hóf lögregluskóli ríkisins, í samstarfi við tæknideild lögreglu skipulagningu á þriggja lotu grunnnámskeiði tæknirannsókna. Markmið námskeiðanna er að auka við og viðhalda þekkingu og færni rannsóknarlögreglumanna til að vinna tæknivinnu á vettvangi afbrota, en á reglulegum fundi lögreglustjóra höfðu komið fram óskir um að slíku námskeiði yrði komið á laggirnar.
Hver lota er vikulöng og fyrir skemmstu lauk fyrstu lotu þar sem áherslan snéri að lögregluljósmyndun og blóðferlafræði. Meðfylgjandi myndskeið gefur innsýn í lotuna.
https://dev.logreglan.is/wp-content/uploads/2015/06/Grunnnám-í-tæknirannsóknum%5F.mp4