Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

5. júlí 2020

Þessi frétt er meira en árs gömul

Grjóthrun í Esjunni

Á ellefta tímanum í morgun varð göngufólk í Esjunni vart við miklar drunur og grjóthrun í fjallinu. Stór grjót féllu úr klettabeltinu austan við Þverfellshornið og beint yfir göngustíginn. Tvær konur náðu naumlega að forða sér undan skriðunni sem var nokkuð stór. Önnur þeirra hlaut smávægileg meiðsl. Skriðan féll á gönguleiðina sem er hægra megin, eða austar í Esjunni, (lengri leiðin), austan við Þverfellshornið, frekar ofarlega ofan við Mógilsá. Fólk sem hyggur á útivist á Esjunni ætti að hafa sérstakan vara á sér og fara gætilega því það gæti enn verið laust grjót á svæðinu.