Fara beint í efnið

29. desember 2023

Greitt á nýársdag

Greiðslur fyrir janúar 2024 verða greiddar fyrsta dag mánaðarins eins og alla aðra mánuði ársins.

Tryggingastofnun - hausmynd

Okkur berast gjarnan fyrirspurnir um greiðslur í kringum áramót og því viljum við upplýsa hér um að greiðslur í almannatryggingakerfinu eru greiddar fyrirfram fyrsta dag hvers mánaðar lögum samkvæmt, það á við hvort sem um hátíðisdaga er að ræða eða ekki. Því munu greiðslur fyrir janúar 2024 berast á nýársdag, 1. janúar. Gert er ráð fyrir að greiðslum verði lokið seinni hluta dagsins.