Fara beint í efnið

17. janúar 2018

Greiðslukvittanir frá sýslumönnum færast á vefinn island.is

Fjársýsla ríkisins sendir nú allar kvittanir frá sýslumönnum rafrænt inn á pósthólf gjaldanda á vefnum island.is. Því er pappírskvittanir ekki sendar lengur í pósti.

Ísland.is blátt merki

Þetta gildir um allar færslur hvort sem um innborgun á skuld eða útborgun inneignar er að ræða og jafnframt ef inneign hefur verið skuldajafnað.

Til að nálgast kvittanirnar er farið á slóðina https://minarsidur.island.is/ þar þarf að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum eða íslykli.  Eftir að viðkomandi hefur
skráð sig þar inn er smellt á “Pósthólf - er bréf til þín” en þar birtast kvittanirnar ásamt öðrum skjölum sem send hafa verið til þín frá opinberum aðilum.