Fara beint í efnið

10. júní 2022

Grásleppuleyfi sem renna áttu út á sjómannadag 13. júní 2022

Fiskistofu hefur borist tilkynning um að reglugerðar sé að vænta þar sem þau grásleppuveiðileyfi sem renna út 13. júní n.k. verði lengd til 14. júní vegna sjómannadags.

Fiskistofa logo

Samkvæmt upplýsingum Fiskistofu tekur þessi breyting gildi aðfararnótt 13. júní og því munu grásleppuleyfi þessara skipa vera lengd til 14. júní n.k. mánudag að því gefnu að reglugerð þess efnis birtist á vef Stjórnartíðinda (www.stjornartidindi.is) á morgun föstudag. Fiskistofa vill því benda útgerðum þeirra skipa sem hafa grásleppuveiðileyfi sem rennur út 13. júní að fylgjast með birtingu reglugerðarinnar þar sem hún er forsenda þess að ekki þurfi að draga upp 13. júní.