Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

5. september 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Göngum í skólann

Hið árlega verkefni GÖNGUM Í SKÓLANN hófst í vikunni, en það er nú haldið í átjánda sinn hér á landi. Megin markmið verkefnisins eru að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar og að draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum. Auk þess er reynt að stuðla að vitundarvakningu fyrir virkum ferðamáta og umhverfismálum og það hversu “gönguvænt” umhverfið er.

Göngum í skólann