Fara beint í efnið

9. janúar 2024

Góðar gjafir frá Sambandi sunnlenskra kvenna

Höfðinglegar gjafir

IMG 9723

Samband sunnlenskra kvenna afhentu formlega í gær Heilbrigðisstofnun Suðurlands höfðinglegar gjafir.

Það er afrakstur kvennanna í sambandinu sem hafa safnað fyrir kaupum á tækjum og búnaði fyrir Ljósmæðra- og fæðingarvakt, Bráðamóttöku og Lyflækningdeild HSU.
Ljósmæðravaktinni voru gefin gulumeðferðarteppi, 2 ungbarnavogir með töskum, bráðatösku fyrir fæðingastofu, blóðtökukörfum, hnakkakoll, 2 nýburaöndunarbelgir, blóðþrýstingsmælir á fæti og súrefnismettunarmælir. Andvirði 1.585.115 kr.

Gulumeðferðarteppið er t.d. stór þáttur í því að geta meðhöndlað nýburagulu á öruggan og árangusríkan hátt í heimahúsi undir eftirliti ljósmæðra og lækna. Nýburinn þarf ekki að leggjast inn á sjúkrahús til meðferðar sem sparar fjölskyldunni mikil óþægindi og minnkar streitu. Það hefur svo bein áhrif á umönnun barnsins og brjóstagjöf.

Lyflækningadeildinni var færður myndarlegur hægindastóll með rafmagni. Slíkir stólar eru mikið notaðir af skjólstæðingum og aðstandendum þeirra. Þar sem skjólstæðingar þurfa oft að dvelja lengi á deildinni er mikilvægt fyrir lyflækningadeild að geta boðið upp á aðra vegu til að hvílast en í rúmið. Andvirði gjafar, 244.875 kr

Bráðamóttakan fékk til sín myndarlegan nálavagn sem nýtist einstaklega vel inni á bráðamóttökunni. Þar er hægt að koma fyrir öllu sem viðkemur blóðprufum, blóðræktunum og æðaleggjauppsetningu á einum stað. Auðvelt að keyra hann milli staða og með stillanlegu handfangi. Hægt að keyra hann inná lager til að fylla á hann. Er í mjög góðri vinnuhæð og þægilegur í umgengni. Starfsfólkið er upp til hópa mjög ánægt með þessa viðbót sem bætir vinnuaðstöðuna mjög mikið". Andvirði gafar 402.757 kr.

Við viljum þakka Sambandi sunnlenskra kvenna og þeim aðilum sem að allri þessari fjáröflun standa fyrir þessar góðu gjafir. Þær bæta tækjakost og búnað fyrir okkar skjólstæðinga og einnig bæta þær starfsaðstöðu starfsfóks og öryggi. Kærar þakkir bættan tækjakost.

Skjámynd 2024-01-10 144605

Fyrir hönd SSK (f.v.): Jóhanna Lilja Þrúðmarsdóttir ritari, Margrét Guðjónsdóttir, Helga Baldursdóttir gjaldkeri, Elinborg Sigurðardóttir, Jórunn Helene Jónsdóttir, Sólveig Þórðardóttir formaður og Arndís Fannberg. Fyrir hönd HSU: Anna Björk Ómarsdóttir deildarstjóri lyflækningardeildar, Björk Steindórsdóttir, yfirljósmóðir ljósmæðra- og fæðingardeildar og Anne María Steinþórsdóttir deildarstjóri bráðamóttöku.

Stóll

Hægindastóll á lyflækningadeild

Ljósmæðra

Tækjabúnaður á ljósmæðra- og fæðingardeild

Guluteppi

Guluteppi fyrir nýbura

nálabakki

Nálabakki á bráðamóttöku

IMG 9722
IMG 9721