Fara beint í efnið

14. ágúst 2026

Góð þátttaka íslenskra aðila í umsóknum um menningarverkefni Uppbyggingarsjóðs EES í Slóvakíu

Alls koma 20 íslenskar menningarstofnanir að umsóknum sem bárust í fyrsta umsóknarfresti sjóðsins, en verkefnin byggja á samstarfi Slóvaka við samstarfsaðila frá Íslandi, Noregi og Liechtenstein.

Fyrsti umsóknarfrestur rann út 5. ágúst síðastliðinn og bárust alls 66 verkefnisumsóknir. Að umsóknunum koma 74 þátttakendur frá Slóvakíu, 60 frá Noregi, 20 menningarstofnanir frá Íslandi og tveir þátttakendur frá Liechtenstein. Íslensk þátttaka er því töluverð og sýnir mikinn áhuga íslenskra menningarstofnana á samstarfi Slóvaka.

Um er að ræða umfangsmikil verkefni og er hægt að sækja um allt að 700 þúsund evrur í styrk fyrir hvert verkefni. Samanlögð fjárhæð styrkumsókna nemur rúmlega 40 milljónum evra. Þar af er hlutur íslenskra samstarfsaðila rúmlega 1,7 milljónir evra.

Verkefnin eru hluti af menningaráætlun Uppbyggingarsjóðs EES í Slóvakíu, þar sem lögð er áhersla á alþjóðlegt samstarf og tengslamyndun milli stofnana og fagaðila í Slóvakíu og gjafaríkjunum þremur, Íslandi, Noregi og Liechtenstein. Þátttaka íslenskra menningarstofnana skapar þannig tækifæri til að byggja upp ný tengsl, miðla þekkingu og þróa tvíhliða verkefni.

Næsta skref er mat á umsóknunum, sem hefst í september. Gert er ráð fyrir að niðurstöður úthlutunar liggi fyrir undir lok ársins. Þá kemur í ljós hversu mörg þeirra verkefna sem íslenskir aðilar taka þátt í hljóta styrk.

Uppbyggingarsjóður EES gegnir mikilvægu hlutverki í að efla tvíhliða samstarf Íslands og viðtökuríkjanna á fjölmörgum sviðum. Menningarsamstarfið er þar mikilvægur þáttur og þátttakan í þessari umsóknarlotu sýnir að töluverður áhugi er bæði hér á landi og í Slóvakíu á að þróa samstarfið enn frekar.