Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

14. júní 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Góð skemmtun er örugg og ofbeldislaus

Dómsmálaráðuneytið, lögreglan og Neyðarlínan hrinda nú af stað vitundarvakningunni Góða skemmtun fyrir sumarið 2024. Vitundarvakningin hvetur til þess að fólk skemmti sér vel á hátíðum sumarsins – og að þau sem standa að viðburðum tryggi með góðum undirbúningi og skipulagi að samkoman verði góð skemmtun þar sem öryggi gesta er í forgangi.

Meginskilaboðin í vitundarvakningunni eru að góð skemmtun er örugg og ofbeldislaus. Slagsmál, ógnun, kynferðislegt ofbeldi og áreitni eiga aldrei að líðast. Skemmtanir sumarsins eru margar og fjölbreyttar. Líkurnar á afbrotum eru meiri á stærri viðburðum sem telja þúsundir manna og næturskemmtunum heldur en t.d. á litlum bæjarhátíðum að degi til með áherslu á menningu, matvæli, listmuni og vöfflukaffi. Ekki er þar með sagt að alvarleg atvik geti ekki allt eins komið upp á umfangsminni viðburðum, en líkur á afbrotum aukast eðli máls samkvæmt eftir því sem samkoman er fjölmennari.

Ætíð skal hafa samband við 112 í neyð.

Hér fyrir neðan má nálgast góð ráð fyrir viðburðahaldara, sveitarfélög, foreldra, forsjáraðila og ungmenni, og markaðsefni til að deila áfram til að auka líkur á öruggri og ofbeldislausri skemmtun.

Netborðar fyrir heimasíður viðburðahaldara

Efni fyrir útimiðla (LED skilti)

Góð ráð til viðburðahaldara

Góð ráð til foreldra og forsjáraðila

Góða skemmtun á 112.is


Nánari upplýsingar veitir:

Eygló Harðardóttir, verkefnastjóri afbrotavarna hjá ríkislögreglustjóra, eyglohardar@logreglan.is