7. ágúst 2026
7. ágúst 2026
Gleðigangan
Gleðigangan fer fram á morgun, laugardag, og þá má búast við þúsundum gesta í miðborginni eins og jafnan áður. Veðurútlitið er ágætt og því er hinn fínasti dagur í vændum. Lögreglan minnir alla vegfarendur á að sýna þolinmæði og skilning og að sjálfsögðu að virða hinar hefðbundnu lokanir sem verða settar upp í tengslum við Gleðigönguna, en áætlað er að búið verði að aflétta öllum lokunum kl. 18. Gangan hefst við Hallgrímskirkju kl. 14, en farið verður um Skólavörðustíg, Bankastræti, Lækjargötu og Fríkirkjuveg í Hljómskálagarðinn þar sem útitónleikar taka við.
