12. júní 2024
12. júní 2024
Gjöf til blóðskilunardeildar SAk
Gjöf til minningar um Svölu Tómasdóttur.
Í dag, 12. júní, fékk blóðskilun SAk gjöf til minningar um Svölu Tómasdóttur.
Svala var í blóðskilun í rúm 3 ár en hún lést 23. desember 2023. Það voru skólasystur Svölu frá Húsmæðraskólanum á Laugalandi í Eyjafirði sem gáfu gjöfina.
Gjöfin innihélt hitateppi fyrir skjólstæðinga og örbylgjuofn til að hita grjónapoka á axlirnar ásamt hitapúða fyrir axlir handa starfsfólki.
„Þessi gjöf mun nýtast okkar fólki mjög vel og erum þakklát fyrir velvild og hlýhug," segir Sólveig Tryggvadóttir verkefnastjóri á blóðskilun.
Á meðfylgjandi mynd eru Sigríður M. Gamalíelsdóttir, Sigurlína G. Jónsdóttir og Sólveig Tryggvadóttir.