Fara beint í efnið

21. mars 2024

Gígja í heimsókn

Margrét Gígja Þórðardóttir, aðstoðarleikskólastjóri Sólborgar, kom í heimsókn á Samskiptamiðstöð og kynnti starfið á Sólborg.

Gígja í heimsókn

Þann 15. mars sl. fengum við á Samskiptamiðstöð góða heimsókn. Margrét Gígja Þórðardóttir, aðstoðarleikskólastjóri Sólborgar, kom og kynnti okkur starfið á leikskólanum.

Í framhaldið af kynningunni gafst tækifæri til að ræða mögulega samstarfsfleti Sólborgar og SHH.

Alltaf gott að hitta Gígju og frábært að sjá hversu blómlegt táknmálsstarfið á Sólborg er.