Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

4. apríl 2025

Geislavarnir auglýsa tímabundið starf / sumarstarf með mögulegri framlengingu

Við leitum að metnaðarfullum og skipulögðum starfsmanni með bakgrunn í raungreinum á háskólastigi til að starfa með okkur sumarið 2025 og e.t.v. lengur. Þetta er einstakt tækifæri til að afla sér reynslu og kynnast fjölbreyttum verkefnum stofnunarinnar.

Geislavarnir ríkisins logo, skjaldarmerki

Helstu verkefni og ábyrgð

Í starfinu munt þú sinna almennum skrifstofustörfum ásamt því að taka þátt í öðrum ýmsum verkefnum á sviði stofnunarinnar sem ráðast af þínum styrkleikum og þekkingu. Verkefnin geta falið í sér:

  • Gagnavinnslu og skýrslugerð

  • Aðstoð við rannsóknir eða tæknileg verkefni

  • Skipulagningu og skjalavörslu

  • Önnur verkefni eftir þörfum

Hæfniskröfur

  • Að minnsta kosti eins árs háskólamenntun í raungreinum, t.d. eðlisfræði, efnafræði, geislafræði eða skyldum greinum.

  • Góð tölvukunnátta

  • Góð enskukunnátta

  • Skipulagshæfileikar

  • Jákvætt viðhorf og frumkvæði

  • Góðir samskiptahæfileikar

  • Önnur nám- og starfsreynsla er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Geislavarnir ríkisins er 12 manna stofnun þar sem starfsandi er góður eins og niðurstöður í könnun Sameykis, Stofnun ársins, sýnir. Við leitum að einstaklingi sem fellur vel inn í samhentan hóp starfsmanna. Geislavarnir eru með vottað gæðakerfi samkvæmt ISO 9001:2015 staðlinum.

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningum. Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.

Starfshlutfall er 100%

Sótt er um starfið í gegnum Starfatorg hér.

Umsóknarfrestur er til og með 21.4.2025.