Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

11. ágúst 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Gaskútum stolið í Reykjavík

Gaskútum var stolið á tveimur stöðum í borginni í gær. Slík mál eru tilkynnt til lögreglunnar á hverju sumri en undanfarin ár hefur gaskútum verið stolið á ýmsum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Eigendur gaskúta ættu því að gera ráðstafanir ef þeir mögulega geta, ekki síst þeir sem eru með gaskúta á fellihýsum sínum.