Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

10. september 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Gaskútum stolið í Mosfellsbæ

Tveimur gaskútum var stolið í Mosfellsbæ í gær. Allnokkur slík mál hafa verið tilkynnt til lögreglunnar undanfarnar vikur en gaskútum hefur verið stolið á ýmsum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Eigendur gaskúta ættu því að gera ráðstafanir ef þeir mögulega geta, ekki síst þeir sem eru með fellihýsi úti við og hafa ekki fjarlægt af þeim gaskútana.