Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

17. mars 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Gæsluvarðhald framlengt

Gæsluvarðhald yfir karlmanni um þrítugt var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur framlengt til miðvikudagsins 22. mars, en maðurinn er grunaður um að hafa hleypt af skoti inni á Dubliners í miðborg Reykjavíkur sl. sunnudagskvöld. Hann var handtekinn daginn eftir og úrskurðaður í gæsluvarðhald til 17. mars, en varðhaldið hefur nú verið framlengt eins og áður sagði. Rannsókn málsins miðar vel.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.