1. júní 2018
1. júní 2018
Þessi frétt er meira en árs gömul
Gæsluvarðhald framlengt
Héraðsdómur Suðurlands hefur í dag fallist á kröfu lögreglustjórans á Suðurlandi um að framlengt skuli gæsluvarðhald yfir karlmanni sem grunaður er um að hafa orðið valdur að bana bróður síns á sveitabæ í uppsveitum Árnessýslu þann 31. mars s.l. allt til 22. júní n.k. Rannsókn málsins er lokið, unnið er að frágangi gagna og verður það sent Héraðssaksóknara til ákærumeðferðar á næstu dögum.