Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

4. maí 2018

Þessi frétt er meira en árs gömul

Gæsluvarðhald framlengt

Héraðsdómur Suðurlands framlengdi í dag, með úrskurði sínum, gæsluvarðhald yfir manni á sjötugsaldri sem grunaður er um að hafa orðið bróður sínum að bana á sveitabæ í uppsveitum Árnessýslu fyrr í vor. Núverandi gæsluvarðhald rennur út á mánudag, þann 7. maí og er framlengt í 4 vikur frá þeim degi, n.t.t. til kl. 16:00 þann 4. júní n.k.

Rannsókn málsins miðar vel og standa vonir til þess að unnt verði að afgreiða það fullrannsakað til héraðssaksóknara í maí.