Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

4. ágúst 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fyrsti dagur Þjóðhátíðar 2012 liðinn

Nokkur erill var hjá lögreglunní Vesmannaeyjum síðustu nótt. Rólegt var fyrrihluta nætur, en þegar leið á nóttina fór verkefnum að fjölga. Þrír gistu fangageymslu síðustu nótt vegna kærumála og ölvunarástands en nokkuð var um pústra og slagsmál í Herjólfsdal.

Undir morgun kærði ung stúlka nauðgun í Herjólfsdal. Hún var send á neyðarmóttöku í Reykjavík og er málið í rannsókn hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum.

Tvær líkamsárásir voru kærðar í nótt og voru báðar í Herjólfsdal. Önnur var sínu alvarlegri er 19 ára maður sló mann þannig að flytja varð þann á sjúkrahús. Um er að ræða alvarlega árás og er grunur að árásarþoli sé höfuðkúpubrotinn. Atvikið náðist á eftirlitsmyndavélar sem hátíðarhaldarar settu upp fyrir þessa hátíð og koma upptökurnar að notum við rannsókn málsins. Árásaraðilinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu.

Hin líkamsárásin varð með þeim hætti að par kærði aðila fyrir að ráðast á þau. Vitað er hver var árásaraðili og verður hann boðaður í skýrslutöku vegna rannsóknar á málinu.

Um kl. 02:00 í nótt var tilkynnt um rúðubrot í versluninni Tvistinum og sá er það gerði væri á leið frá staðinum. Lögreglumenn hlupu hann uppi og færðu á lögreglustöð þar sem hann viðurkenndi rúðubrotið.

Fíkniefnamálin í tengslum við hátíðina eru nú orðin 23 talsins og eru öll málin svokölluð neyslumál. Haldlögð efni eru marijúana, amfetamín og einnig hafa verið haldlagðir ofskynjunarsveppir. Um 6 lögreglumenn sinna þess eftirliti auk fíkniefnahundanna Lunu frá Vestmannaeyjum, Vinkils og Toby.

Lögreglan áætlar að að gestir á hátíðinni séu nú eitthvað yfir tíu þúsund og enn mun bætast við í dag og á morgun með Herjólfi og flugi.

Veður í nótt var gott, hlýtt en nokkuð hvasst svo einhver tjöld fuku og var tjaldbúum boðin gisting í íþrótthúsi bæjarins og þar gistu um 40 manns í nótt undir umsjón gæsluliða.