Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

9. ágúst 2018

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fyrirmyndarakstur í Vesturbergi í Reykjavík

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar í Vesturbergi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturberg í suðurátt, á móts við Vesturberg 73. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 154 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema tveimur ekið á löglegum hraða. Hinir brotlegu mældust á 65 og 67 en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Vesturbergi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.