17. ágúst 2012
17. ágúst 2012
Þessi frétt er meira en árs gömul
Fyrirmyndarakstur í Hvalfjarðargöngum
Næstum allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar í Hvalfjarðargöngum á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hvalfjarðargöng í norðurátt, um 1 km frá syðri munni gangnanna. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 193 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema einu ekið á löglegum hraða, en þarna er 70 km hámarkshraði. Hinn brotlegi mældist á 83 km hraða.
Vöktun lögreglunnar í Hvalfjarðargöngunum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.