Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

27. júní 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fyrirmyndarakstur í Hólmgarði í Reykjavík

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar í Hólmgarði í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hólmgarð í austurátt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru reyndar aðeins 8 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum ekið á löglegum hraða en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Hólmgarði er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.