Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

10. júní 2013

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fyrirmyndarakstur á Vesturlandsvegi

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Vesturlandsvegi í Kollafirði á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í vesturátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 362 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema sex, ekið á löglegum hraða en þarna er 90 km hámarkshraði. Meðalhraði hinna brotlegu var 105 km/klst, en sá sem hraðast ók mældist á 120.

Vöktun lögreglunnar á Vesturlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.