Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

15. janúar 2019

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fyrirmyndarakstur á Suðurlandsvegi

Flestir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Suðurlandsvegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í vesturátt, á Sandskeiði. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 204 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema fjórum ekið á löglegum hraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 100 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og snjóþekja var á meðan hraðamælingunni stóð.