16. maí 2013
16. maí 2013
Þessi frétt er meira en árs gömul
Fyrirmyndarakstur á Suðurlandsvegi
Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Suðurlandsvegi á Sandskeiði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurlandsveg í vesturátt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 196 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema sex, ekið á löglegum hraða en þarna er 90 km hámarkshraði.
Meðalhraði hinna brotlegu var 103 km/klst, en sá sem hraðast ók mældist á 107.
Vöktun lögreglunnar á Suðurlandsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.