Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

7. október 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fyrirmyndarakstur á Skólabraut í Mosfellsbæ

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Skólabraut í Mosfellsbæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skólabraut í austurátt, við Varmárskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 27 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum ekið á löglegum hraða en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Skólabraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.