Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

19. nóvember 2013

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fyrirmyndarakstur á Reykjanesbraut í Hafnarfirði

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í austurátt, að Kaldárselsvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 466 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum ekið á löglegum hraða, en þarna er 80 km hámarkshraði. Meðalhraði ökumanna var 75.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.